Eldarnir : Ástin og aðrar hamfarir
Lesa meiraHið heilaga orð
Lesa meiraEyland
Lesa meira
Eldarnir : Ástin og aðrar hamfarir
Hamfarasagan virðist lifa góðu lífi um þessar mundir. Á síðustu árum hefur sú bókmenntagrein þótt hæfa til að takast á við loftslagsbreytingar samtímans, yfirvofandi hamfara af völdum hnattrænnar hlýnunar. Þá hefur hamfaraárið 2020, árið þegar pestin náði völdum á lífi almennings með tilheyrandi fordæmalausum reglugerðum, hömlum, boðum og bönnum, og margvíslegum félagslegum afleiðingum, stutt enn frekar við að sú bókmenntagrein eigi upp á pallborðið hjá lesendum. Hvaða áhrif hefur það að lesa um hamfarir þegar maður upplifir hamfarir? Skapar það einhverskonar sefjun, hreinsun eða bara speglun?
Hið heilaga orð
Hið heilaga orð er önnur skáldsaga Sigríðar Hagalín en hún þreytti frumraun sína með dystópísku skáldsögunni Eylandi (2016). Sigríður er gífurlega hugmyndaríkur rithöfundur og í annarri bók sinni sleppir hún af sér beislinu sem leiðir af sér einstaka sögu sem erfitt er að lýsa.
Eyland
Fyrsta skáldsaga Sigríðar Hagalín Björnsdóttur, Eyland, er margslungin bók sem er erfitt að festa undir eina ákveðna bókmenntagrein. Bókin hefst á einbúa í eyðifirði sem er að taka á móti lömbum. Einbúanum er umhugað um að komast lífs og virðist vera á flótta undan einhverju. Hann sest svo við skriftir í hrörlega kofanum sínum þar sem hann ætlar sér að skrifa annál um það sem hefur gerst og „hvernig þetta myrkur skall á“ (bls. 11). Í næsta kafla breytist sjónarhornið og lesandinn fær að kynnast Hjalta Ingólfssyni, blaðamanni, sem heldur fínt matarboð í Hlíðunum ásamt kærustu sinni, Maríu.