Beint í efni

Sigurbjörg Þrastardóttir

Æviágrip

Sigurbjörg Þrastardóttir er fædd 27. ágúst 1973 á Akranesi. Hún lauk B.A.-prófi í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands 1997 og prófi í hagnýtri fjölmiðlun frá sama skóla 1998.

Fyrsta bók Sigurbjargar, ljóðabókin Blálogaland, kom út árið 1999 en síðan hefur hún sent frá sér fleiri ljóðabækur, leikrit og prósa. Sigurbjörg hefur gefið út tvær skáldsögur, Stekk (2012) og Sólar sögu, en sú síðarnefnda hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar þegar hún kom út árið 2002. Sigurbjörg hefur fengið fleiri viðurkenningar fyrir verk sín, meðal annars var ljóðabókin Hnattflug valin besta ljóðabók ársins af starfsfólki bókaverslana árið 2000, ljóðsagan Blysfarir hlaut Fjöruverðlaunin 2008 og Brúður var tilnefnd til Menningarverðlauna DV 2010. Ljóð Sigurbjargar hafa verið þýdd á ein tólf tungumál í tengslum við bókmenntaþing, ljóðahátíðir og útgáfu safnrita um Evrópu þvera. Af annars konar verkefnum má nefna bókverkið IS(not) sem Sigurbjörg vann í félagi við fjóra aðra höfunda og fimm pólska ljósmyndara, margvíslega gjörninga með Metropoetica-hópnum og textagerð fyrir íslensk tónskáld. Sigurbjörg var skáld Borgarbókasafns í janúar og febrúar 2003, skáld Skírnis haustið 2001 og staðarskáld í Villa Concordia í Bamberg, Þýskalandi, veturinn 2011-2012.

Sigurbjörg Þrastardóttir býr í Reykjavík.

Forlag: JPV útgáfa