Karlar sem hata konur
Lesa meira
Karlar sem hata konur
Karlar sem hata konur er fyrsta bókin í svokallaðri Millennium þrílógíu eftir sænska blaðamanninn og rithöfundinn Stieg Larsson. Larsson lést langt um aldur fram, rétt áður en fyrsta bókin kom út í Svíþjóð árið 2005. Ég las fyrstu bókina stuttu eftir að hún kom út á dönsku sama ár og það er ánægjulegt að geta rifjað þau kynni upp nú. Reyndar sætir furðu að það hafi tekið tæp fjögur ár að fá bækur Larssons útgefnar á íslensku því að þær vöktu strax mikla athygli og hafa verið þýddar á mörg tungumál.