Dætur hafsins
Lesa meira
Dætur hafsins
Aðalsöguhetja bókarinnar, Ragnhildur, er ritstjóri glanstímarits. Bókin hefst á því að föðursystir hennar, Herdís, hefur verið myrt og í ljós kemur að hún hefur arfleitt Ragnhildi að dagbókum sínum. Þær segja frá ævi hennar og raunar líka kynlífsiðkan í gegnum árin. Verður Ragnhildur fremur forviða er hún kemst að því að bækurnar innihalda þessar mjög svo blautlegu lýsingar. Og þar höfum við nýja íslenska búgrein; hina erótísku glæpasögu. Kemur þarna margt úr kafinu sem Ragnhildur átti ekki von á enda hafði hún talið þessa frænku sína í meira lagi siðsama og hélt varla að hún hefði verið við karlmann kennd. Annað kemur sem sé á daginn og ekki er það allt fallegt.