Beint í efni

Sveinbjörn I. Baldvinsson

Æviágrip

Sveinbjörn I. Baldvinsson er fæddur í Reykjavík 27. ágúst 1957 og ólst upp í Hlíðunum og síðar Laugarásnum. Hann byrjaði snemma að fást við tónlist og ljóðagerð og gaf út fyrstu ljóðabókina þegar hann var 19 ára og hljómplötu með eigin tónlist og textum 21 árs. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Tjörnina 1977 og BA prófi í almennri bókmenntafræði og dönsku frá Háskóla Íslands og Háskólanum í Kaupmannahöfn 1982.

Sveinbjörn sneri sér æ meira að dramatískum skrifum og flutti haustið 1986 ásamt fjölskyldu til Los Angeles til að leggja stund á nám í slíkum skrifum við Suður-Kaliforníuháskóla. Á sama tíma hófst hann handa við að skrifa handrit að fyrstu kvikmynd sinni í fullri lengd, Foxtrot.  Það sama ár hlaut smásaga Sveinbjarnar, „Icemaster“  fyrstu verðlaun í Smásagnakeppni Listahátíðar, en hún hefur síðan birst í safnritum víða um lönd.

Að loknu Mastersnáminu við Suður-Kaliforníuháskóla vann Sveinbjörn um skeið að ýmsum verkefnum sem handritshöfundur í Los Angeles, en varð dagskrárstjóri Innlendrar dagskrárdeildar RÚV árið 1993 og til 1996 en fékk síðan tækifæri til að starfa sem handritshöfundur í Danmörku og vann reglulega að dönskum kvikmynda- og sjónvarpsverkefnum næsta áratuginn. Þeirra þekktust eru þáttaraðirnar Taxa og Forsvar.

Sveinbjörn var kvikmyndaráðgjafi hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands frá 2003 til 2006. Hann hefur verið leiðbeinandi á alþjóðlegum námskeiðum í handritsgerð fyrir evrópska höfunda í nokkur ár og einnig starfað sem handritsráðgjafi hér heima og á Norðurlöndum. Sveinbjörn var skipaður dósent og yfirmaður handritshöfundadeildar Norska kvikmyndaskólans 2009 og lauk störfum þar 2019.

Sveinbjörn lék fyrr á árum í nokkrum hljómsveitum, svo sem Diabolus in Musica og jazzsveitinni Nýja kompaníið og hefur ávallt lagt stund á lagasmíðar, söngtextagerð og hljóðfæraleik meðfram ritstörfum. Þekktustu lög hans eru „Lagið um það sem er bannað“ og textinn við Eurovision-lagið „All Out Of Luck“.

Sveinbjörn var varaformaður Rithöfundasambandsins og ritari Bandalags íslenskra listamanna 1992-1994. Hann var ritari Félags leikskálda og handritshöfunda og sat í dómnefnd Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 1998-2009. Sveinbjörn var varaforseti Samtaka evrópskra handritshöfunda (FSE) 2006-2013 og forseti samtakanna 2013-2015. Hann er félagi í Evrópsku kvikmyndaakademíunni.

 

Mynd af höfundi: Trude Lindland