Úr hljóðveri augans
Lesa meira
Brjálsemiskækir á fjöllum
Lesa meira
Úr hljóðveri augans
Vésteinn Lúðvíksson tilheyrir týndri kynslóð í íslenskum bókmenntum. Hann var í senn upphafsmaður og helsti hugsuður nýraunsæisins á áttunda áratugnum, sprenglærður í marxískum kenningum um samband bókmennta og samfélags. Um þessi efni skrifaði hann lærðar greinar og stórvirkið Gunnar og Kjartan sem kom út laust eftir 1970 var tilraun til að framkvæma þessar kenningar. En þegar nýraunsæið fjaraði út hvarf Vésteinn af vettvangi bókmenntanna, síðan hefur hann verið ötull við að kynna fyrir Íslendingum austræn fræði, hugleiðslu og búddisma. En eftir langa bið er skáldið Vésteinn nú komið í leitirnar í stórgóðri ljóðabók sem nefnist Úr hljóðveri augans.