Tilnefningar til Maístjörnunnar vegna ljóðabókar útgefinnar 2018 voru kynntar við hátíðlega athöfn í Gunnarshúsi 29. maí. Maístjarnan, ljóðabókaverðlaun Rithöfundasambands Íslands og Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns verða veitt í annað sinn í maí. Verðlaunin eru einu verðlaun á Íslandi sem veitt eru eingöngu fyrir útgefna íslenska ljóðabók, er þeim ætlað að hvetja skáld til að yrkja og koma ljóðum sínum í útgáfu.
Tilnefndar bækur og skáld eru:
- Ásdís Ingólfsdóttir – Ódauðleg brjóst (Partus)
- Eva Rún Snorradóttir – Fræ sem frjóvga myrkrið (Benedikt bókaútgáfa)
- Gerður Kristný – Sálumessa (Mál og menning)
- Haukur Ingvarsson – Vistarverur (Mál og menning)
- Linda Vilhjálmsdóttir – Smáa letrið (Mál og menning)
- Sigfús Bjartmarsson – Homo economicus I (MTH útgáfa)
Bækurnar eru allar til sýnis í anddyri Þjóðarbókhlöðunnar.
Til verðlaunanna eru gjaldgengar allar útgefnar íslenskar ljóðabækur ársins 2018 sem skilað var til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og fékk dómnefnd þær til umfjöllunar.
Dómnefnd skipa Sveinn Yngvi Egilsson fyrir hönd Rithöfundasambandsins og Eva Kamilla Einarsdóttir fyrir hönd Landsbókasafnsins.
Verðlaunin verða veitt við athöfn í Þjóðarbókhlöðunni í maí. Verðlaunafé er 350 þúsund krónur.