Maístjarnan, ljóðabókaverðlaun Rithöfundasambands Íslands og Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns verða veitt í fjórða sinn nú í maí.
Fimm bækur eru tilnefndar til verðlaunanna og var tilkynnt um valið við athöfn í Gunnarshúsi í dag, fimmtudaginn 7. maí.
Tilnefndar bækur
Eftirtaldar bækur eru tilnefndar til verðlaunanna í ár:
Jónas Reynir Gunnarsson – Þvottadagur. Útgefandi: Páskaeyjan.
Kristín Eiríksdóttir – Kærastinn er rjóður. Útgefandi: JPV.
Sigurlín Bjarney Gísladóttir – Undrarýmið. Útgefandi: Mál og menning.
Þórður Sævar Jónsson – Vellankatla. Útgefandi: Partus.
Þór Stefánsson – Uppreisnir. Útgefandi: Oddur.
Bækurnar eru allar til sýnis í anddyri Þjóðarbókhlöðunnar.
Maístjarnan
Allar útgefnar íslenskar ljóðabækur ársins 2019 sem skilað var til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns voru gjaldgengar til verðlaunanna og fékk dómnefnd þær til umfjöllunar. Hana skipa Guðrún Steinþórsdóttir fyrir hönd Rithöfundasambandsins og Arnaldur Sigurðsson fyrir hönd Landsbókasafnsins.
Verðlaunin verða veitt við athöfn í Þjóðarbókhlöðunni síðar í mánuðinum. Verðlaunaféð er 350 þúsund krónur.
Ljóðabókaverðlaunin Maístjarnan eru einu verðlaunin á Íslandi sem veitt eru eingöngu fyrir útgefna íslenska ljóðabók. Þeim er ætlað að vekja athygli á blómlegri ljóðabókaútgáfu á Íslandi.