Ewa Marcinek segir frá bókagjöf Sleipnis og Bókmenntaborgarinnar til barna í tilefni af 10 ára afmæli Bókmenntaborgarinnar árið 2021. Á pólsku með íslenskum texta.
Öll börn í Reykjavík sem verða eins árs 2021 fá afmælispakka frá Bókmenntaborginni í tilefni þessa merkisafmælis en í honum er bókin Vetrarævintýri Sleipnis eftir Gerði Kristnýju og Gunnar Karlsson, lestrarstikan Barnið vex með hverri bók eftir Bergrúnu Íris Sævarsdóttur og kort frá Borgarbókasafninu með boði um að sækja um fyrsta bókasafnskort barnsins, en öll börn geta fengið ókeypis bókasafnskort allt frá fæðingu.
Í stiklunni eru þau Ewa Marcinek og Sleipnir - lestrarfélagi barnanna.
Myndband: Reykjavík bókmenntaborg UNESCO 2021.