Beint í efni
kl.
Borgarbókasafnið Grófinni
Tryggvagata 15, 101 Reykjavík

Vetrarfrí | Hver er þín sögupersóna?

Staðsetning: 5. hæð Myndhöfundurinn Iðunn Arna leiðbeinir krökkum á aldrinum 9-12 ára hvernig hægt er að hanna skemmtilegar persónur fyrir sögur. Farið verður í gegn um ferlið hvernig sögupersóna byrjar sem hugmynd og hvernig hún lifnar við á blaðinu. Þáttakendur læra að búa til karakterspjöld þar sem við kynnumst persónunni betur frá fleiri hliðum og blásum lífi í hana svo hún verði tilbúinn í næsta ævintýri. Iðunn Arna er teiknari og myndhöfundur sem hefur myndlýst barnabókunum Brásól Brella, Ævintýri Munda lunda, Hvuttasveinar og bókaflokknum Bekkurinn minn. Bekkurinn minn fékk einnig viðurkenningu frá Barnabókaverlaunum Reykjavíkur árið 2023. Námskeiðið er 3 daga: - fimmtudagurinn 26. október klukkan 10.00 - 12.00 - föstudagurinn 27. október klukkan 10.00 - 12.00 - mánudagurinn 30. október klukkan 10.00 - 12.00 Fyrir nánari upplýsingar: Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, sérfræðingur gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411 6100