
Í risi Gröndalshúss er vinnuaðstaða til leigu fyrir einstaklinga eða hópa í skapandi starfi, kostur er að það tengist ritlist. Um er að ræða tvö herbergi sem leigjast út sitt í hvoru lagi. Á hæðinni er auk þess lítið eldhús, borðkrókur/fundarými og snyrting sem leigjendur þessara tveggja vinnuherbergja deila með sér.
Gröndalshús er í hjarta miðborgarinnar á horni Fischersunds og Mjóstrætis. Á aðalhæð hússins er margmiðlunar sýning um ævi og störf skáldsins Benedikts Gröndals, sem bjó í húsinu frá 1888 - 1907.
Rými A - Vestur
Í herberginu eru nú tvö skrifborð, leiga fyrir hvort skrifborð er 28.000 kr. á mánuði.
Ef herbergið er leigt í einu lagi er leigan 50.000 kr. á mánuði.
Herbergið er í útleigu eins og er.
Rými B - Austur
Í herberginu eru tvö skrifborð, leiga fyrir hvort skrifborð er 28.000 kr. á mánuði.
Ef herbergið er leigt í einu lagi er leigan 50.000 kr. á mánuði.
Herbergið er í útleigu eins og er.
Hvað er innifalið?
Innifalið í leigu er netaðgangur og þrif. Í eldhúsi er ísskápur, kaffivél, hraðsuðuketill og borðbúnaður. Einnig fylgja afnot af stofum Gröndals á aðalhæð hússins fyrir smærri viðburði fyrir almenning, s.s. stofuspjall, upplestur eða aðra menningarviðburði í samráði við Bókmenntaborgina.
Nánari upplýsingar: bokmenntaborgin@reykjavik.is