Að skrifa hið ósegjanlega
Lesa meiraÁ síðasta ári komu út á íslensku fjórar bækur eftir þrjá nýjustu handhafa Nóbelsverðlaunanna í bókmenntum. Tvö verkanna; Þannig var það: Eintal, leikþáttur eftir Jon Fosse og Kona eftir Annie Ernaux fást við endalokin, þótt með ólíkum hætti sé. Þetta eru knappar sögur þar sem horft er inn á við – djúpt inn í manneskjuna og á lífsferil hennar allan. Í Unga manninum er líka tekist á við minningar og fortíð, af djúpum og einlægum vilja til þess að skilja og skilgreina. Paradís er margradda og útleitin saga sem fjallar um ungan dreng í Austur-Afríku í byrjun tuttugustu aldar. Gurnah tekst á við stór umfjöllunarefni, meðal annars kúgun og arðrán nýlendustefnunnar, sem fyrr segir. Það er mikið undir, margar persónur og heil heimsálfa.Óhreinu börnin hennar Evu
Lesa meiraGróteskan er eitt verkfæranna sem notað er til þess að vekja beyg hjá lesandanum – líkt og óhugnanlegar þjóðsögur og sögur af gömlum sjálfsmorðum. Í Heim fyrir myrkur er kannski ekkert rotnandi lík í sjónmáli eins og í sumum fyrri bókanna, en umgjörðin sem er sköpuð nær heldur betur að velgja lesanda undir uggum.Af jöklasorgum og öðrum
Lesa meiraÁstin á Íslandi er einn af mikilvægustu þráðum sögunnar. Djúp tengslin við þetta land mótsagna, þar sem við búum okkur ból þótt við eigum á hættu að missa það aftur, „þar sem hvert fell og hver hóll er til alls vís“ (22). . . .Mannhafið innra með okkur
Lesa meiraÞað mætti segja að Taugatrjágróður sýni fram á hættur þess að vera ofurnæmur á annað fólk og hleypa of mörgum inn í taugakerfi sitt. Enginn er eyland og manneskjan lifir lífi sínu alltaf í samspili við annað fólk en ef við erum of áhrifagjörn og látum stjórnast af lífi og tilfinningum annarra er hætta á því að við glötum sjálfum okkur í leiðinni. Undir lok bókarinnar streyma minningarnar fram í vitund sögukonunnar og hún minnist allra þeirra fjölmörgu persóna sem hún hefur rekist á og hafa haft áhrif á hanaGlæpasaga úr Epal
Lesa meiraEiginlega ætti að setja Blóðmjólk í járnkassa og grafa hana í jörðu, því hún er einstök heimild um líf nútímakvenna í Reykjavík. Kvenna úr ákveðnum kreðsum, sem hafa áhyggjur af því að vera orðnar miðaldra þrítugar (lesið bara Twitter (X) ef þið efist um að svoleiðis fólk sé til!) en líka áhyggjur af stýrivöxtum og plastnotkun. Þær streitast við að elda „allt lífrænt og frá grunni“ og eru haldnar stöðugum frammistöðukvíða.Ímyndað ísaldar Ísland
Lesa meiraÍ Hrím kennir ýmissa grasa en í henni er bæði að finna þroskasögu, ástarsögu og fantasíu. Þrátt fyrir að sagan gerist á Íslandi, nánar tiltekið á norðurlandi í kringum Mývatn og Húsavík, er sögusviðið mjög frumlegt og ekki fer á milli mála að þetta er fantasía. Það sem helst hliðrar þessu Íslandi yfir í heim fantasíunnar er dýraríkið í þessu kunnuglega umhverfi. Öll dýrin í Hrím eru risavaxin og eru af mun fleiri tegundum en hafa nokkru sinni fundist á Íslandi.. .Misskilningur vindur upp á sig
Lesa meiraStelpur stranglega bannaðar! er skrifuð í léttum og gamansömum dúr, en lýsir því hvað það getur verið ótrúlega snúið að vera unglingur og takast á við flóknar tilfinningar. Fjölskyldan og vinirnir leika stórt hlutverk í lífi flestra á unglingsárunum en hlutverk og samskipti taka breytingum sem oft er erfitt að aðlagast og sætta sig við.Krakkar með frjótt ímyndunarafl
Lesa meiraAð sjá veruleika sinn speglaðan á blaðsíðum bóka er mikilvægt fyrir lítil börn. Hversdagsleikinn getur verið ævintýralegur og hlutir sem við upplifum dagsdaglega geta umbreyst í töfrandi sögur. Bækurnar þrjár sem hér verða teknar til umfjöllunar fjalla allar um venjuleg börn í hversdagslegum aðstæðum. Vinirnir Úlfur og Ylfa fara í ævintýraleiðangur í Úlfur og Ylfa: Ævintýradagurinn eftir Ingileifu Friðriksdóttur og Maríu Rut Kristinsdóttur. Bókin er myndskreytt af Auði Ýr Elísabetardóttur. Hinar tvær bækurnar eru nýjustu bækurnar um Obbuló í Kósímó, Nammið og Myrkrið, eftir þau Dinnu og Dóra. .Ógn úr öðrum heimi
Lesa meiraOrrustan um Renóru er afar spennandi og stendur algerlega undir væntingum sem lokakafli í Dulstafa-þríleiknum. Sagan er grípandi og áhugaverð, persónur vekja samkennd með lesandanum sem óskar þess innilega að allt gangi upp hjá þeim.