Gátt hrafnsins
Lesa meira
Gátt hrafnsins / Skelmir Gottskálks
Þótt algengt sé (bæði á bókasöfnum og meðal almennra lesenda) að flokka afþreyingarbókmenntir í tilteknar tegundir, fantasíu, hrollvekju, spennusögu og svo framvegis, þá eru mörkin milli bókmenntagreina alls ekki alltaf skýr. Fantasía og hrollvekja renna til dæmis iðulega saman og sömuleiðis er ekki alltaf langt á milli hrollvekju og spennusögu. Bækurnar sem hér eru til umfjöllunar eru báðar dæmi um þessa tegundablöndun, en þó Gátt hrafnsins og Skelmir Gottskálks flokkist líklegast sem fantasíur fyrir yngri lesendur af Harry Potter kynslóðinni, þá er ljóst að báðar sögurnar sækja þónokkuð til hrollvekjunnar, auk þess sem finna má í þeim þætti úr spennusögum.