Beint í efni

Edda

Edda
Höfundur
Harpa Rún Kristjánsdóttir
Útgefandi
Sæmundur
Staður
Selfoss
Ár
2019
Flokkur
Ljóð

Um bókina

Ljóðabókin Edda eftir Hörpu Rún Kristjánsdóttur hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2019.

Í umsögn dómnefndar segir meðal annars um Eddu: „Gleðin og sorgin takast á, tvinnast saman og verða loks eitt. […] Edda er heillandi og hófstillt verk þar sem hugsanir um æsku og elli fléttast saman, vega salt. Þræðirnir bindast og mynda vef sem sýnir okkur í nýju ljósi svo margt sem við þóttumst vita.“

Harpa Rún Kristjánsdóttir er bókmenntafræðingur og afdalabarn sem hefur birt ljóð í ýmsum tímaritum og skrifað ljóðprósa í ljósmyndabækurnar Þingvellir í og úr sjónmáli og On the road in Iceland. Edda er fyrsta ljóðabók hennar.

 

Fleira eftir sama höfund