Beint í efni

Fallið : Fjölskylduleyndarmál

Fallið : Fjölskylduleyndarmál
Höfundur
Þráinn Bertelsson
Útgefandi
Sögur
Staður
Reykjavík
Ár
2011
Flokkur
Minningabækur / Þættir

Þegar lögreglan knúði dyra hjá séra Bersa, sem var búinn að týna húslyklunum í sjóinn, kom frúin til dyra. Hún var sprenglærð í Alanon-fræðunum og harðneitaði að taka við eiginmanni sínum. Þess vegna svaf hann og vaknaði morguninn eftir í steininum. Það var slíkt áfall að hann fékk aðstoð lögreglunnar til að panta pláss á Vogi.

Séra Bersi er staddur á Vogi þessa stundina vegna þess að hann fór í aðgerð á sjúkrahúsi og þurfti að undirgangast svæfingu. Hann er að takast á við sjúkdóminn á ábyrgan hátt með fyrirbyggjandi aðgerðum.

Hann er lífsreyndur maður, ofurlítið angurvær og skilur að lífið er ekki auðvelt. Eftirlætismálsháttur hans sem ekki er úr ritningunni fjallar um ævistundirnar eða stundirnar í sólarhringnum.:

Omnes vulnerant, postuma necat. Allar særa, hinsta deyðir, segir sér Bersi enda er hann jafn sprenglærður í latínu, grísku og hebresku og hann er virðulegur í fasi. Engan sem ekki þekkir hann mundi nokkru sinni gruna að þessi hógværi sómaklerkur hafi nokkru sinni svamlað ofurölvi innan um unga og vaska lögregluþjóna í Reykjavíkurhöfn ein og trylltur marbendill.

(s. 77-78).

Fleira eftir sama höfund

Englar dauðans

Lesa meira

Englar dauðans

Lesa meira

Walküren

Lesa meira

Maðurinn sem hvarf

Lesa meira

Sigla himinfley

Lesa meira

Það var og ...

Lesa meira

Morðið á ferjunni

Lesa meira

Maðurinn á svölunum

Lesa meira