Úr Fylgdu mér slóð:
Kvöldganga
Gular skófir á steini
brekkusnigill
þetta hreinasta hreina
af öllu svörtu
réttir að mér hornin
hættu þessum látalátum
heldurðu að ég viti ekki
að þú ert að plata eins og
amma gamla forðum
enda rætast óskir manna
sjaldan sem betur fer