Um bókina
Stol er saga um dauðann, tímann og lífið; viðleitnina til að halda í minningarnar og nýta tíma sem er á þrotum.
Baddi er ráðvilltur ungur maður sem kemur heim til Íslands til að annast dauðvona föður sinn, Hörð. Heilaæxli hefur rænt hann svo mörgu sem áður var sjálfgefið og hlutverk feðganna hafa snúist við. Saman fara þeir akandi á gömlum jeppa út úr bænum, en ferðin er feigðarflan. Hörður er óðum að tapa dómgreind sinni, minni og máli, og Baddi ræður illa við aðstæðurnar og ábyrgðina á ósjálfbjarga föður sínum.
Björn Halldórsson hefur áður gefið út smásagnasafnið Smáglæpi. Stol er fyrsta skáldsaga hans.