Um þýðinguna
Ljóðabókin Þungi eyjunnar (La isla en peso) eftir Virgilio Piñera í þýðingu Kristínar Svövu Tómasdóttur, sem ritar einnig eftirmála.
Piñera lýsir kæfandi innilokun eyjarsamfélagsins og sögulegu óréttlæti liðinna alda með miskunnarlausu en safaríku myndmáli sem reitti suma samlanda hans til reiði þegar ljóðið kom fyrst út árið 1943. Virgilio Piñera (1912 – 1979) var eitt af höfuðskáldum Kúbu á 20. öld, þótt frægðarsól hans hafi fyrst verið að rísa fyrir alvöru á síðustu áratugum. Þungi eyjunnar er fyrsta verk hans sem kemur út í íslenskri þýðingu.