Beint í efni

Úlfur og Ylfa : Ævintýradagurinn

Úlfur og Ylfa : Ævintýradagurinn
Höfundar
Ingileif Friðriksdóttir,
 María Rut Kristinsdóttir
Útgefandi
Salka
Staður
Reykjavík
Ár
2023
Flokkur
Barnabækur

Um bókina

Dagurinn í dag er enginn venjulegur dagur. Í dag ætlar Úlfur að fara í ævintýraleiðangur með Ylfu, bestu vinkonu sinni. Það er svo margt skemmtilegt hægt að gera þegar ímyndunaraflið er með í för! Þá getur íslenskur mói breyst í sléttur Afríku og lítil tjörn orðið að Atlantshafinu. Úlfur getur ekki beðið eftir að segja mömmum sínum frá ævintýrum vinanna í lok dags.

Höfundar bókarinnar eru Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir sem halda úti fræðsluvettvanginum Hinseginleikinn. Bókin er sú fyrsta um Úlf og Ylfu sem lesendur eiga eftir að kynnast nánar í framtíðinni. Bókaflokknum er ætlað að fagna fjölbreytileikanum með því að sýna hann í allri sinni dýrð í skemmtilegum sögum fyrir hressa krakka.

úlfur og ylfa : ævintýradagurinn, textadæmi

Fleira eftir sama höfund