The Iron Wagon
Lesa meira
The Iron Wagon
Norski myndasöguhöfundurinn Jason (duln.) heldur áfram sigurgöngu sinni utan Norðurlanda, en nú hefur þriðja bók hans, The Iron Wagon (Jernvognen) verið þýdd á ensku. Það verður reyndar að geta þess að þýðingar á bókum Jasons eru fremur einfalt mál, því textinn er ekki mikill, og því mætti kannski frekar tala um útgáfu á ensku. Það er fyrirtækið Fantagraphic Books sem gefur norðmanninn út, en það fyrirtæki er eitt af þeim fjölmörgu óháðu útgáfufyrirtækjum sem varð til í kjölfar vinsælda neðanjarðarmyndasögunnar í lok sjöunda áratugarins og upphafi þess áttunda.