Rödd í dvala
Lesa meira
Rödd í dvala
Hvað verður um sögur sem lífshættulegt er að segja? Breytast þær í bælt öskur, þögn brjálseminnar? Eða geta þær átt sér framhaldslíf, vaknað úr dvala? Undir lok 20. aldar sprakk svokölluð ‚minnissprengja‘ víða um hinn vestræna heim. Hvarvetna spruttu upp söfn og minnismerki og vitnisburðir um atburði aldarinnar birtust á ýmsu formi í miklu magni. Spánn var hér ekki undanskilinn, þótt staða landsins sé um margt sérstök vegna sögu sinnar. Það hefur reynst gríðarlega flókið að gera upp borgarastyrjöldina og þar liggja fjölmargar ástæður að baki, en ekki síst var það Franco-tíminn og hvernig var staðið að lýðræðisvæðingunni sem stuðlaði að gleymsku og þöggun um þessa skelfilegu tíma.