Sagnfræðingurinn
Lesa meira
Sagnfræðingurinn
Titillinn Sagnfræðingurinn hefur margar tilvísanir í skáldsögu Elizabeth Kostova um hinn (bókmennta)sögufræga Vlad Tepes, eða Drakúla. Í fyrsta lagi fjallar sagan um leit sagnfræðinga að þessari sögupersónu, aðallega þó gröf hans, í öðru lagi er gefið til kynna í skáldsögunni að sjálfur sé Drakúla sagnfræðingur, vel heima í fræðunum og í þriðja lagi er hann sem slíkur ekki aðeins fræðimaður heldur holdgerfingur sögunnar sjálfrar: maður sem hefur lifað marga tíma og mótað söguna. Því samkvæmt skáldsögunni Sagnfræðingurinn lifir Drakúla enn á meðal vor, skáldsaga Bram Stokers var ekkert annað en skáldskapur, söguleg skáldsaga um sögulega persónu og goðsagnir um ódauðleika hennar, en þær goðsagnir eru sumsé á rökum reistar.