Með köldu blóði
Lesa meira
Skáld með köldu blóði
Umrætt skáld er Edgar Allan Poe. Morðinginn í glæpasögunni Skáldið eftir Michael Connelly lætur fórnarlömb sín skrifa tilvitnanir úr ljóðum hans sem kveðjubréf, en morðin eru dulbúin sem sjálfsmorð. Nokkuð smart og greinilegt að höfundurinn er mjög ánægður með þennan bókmenntalega vínkil sinn, enda bókmenntalegar glæpasögur hott stöff um þessar mundir. Skáldið er þó ekki sérlega hott stöff bók verður að viðurkennast. Þó hún sé ágætlega læsileg, plottið hæfilega flókið og lausnin hæfilega óvænt, þá er eitthvað sem vantar uppá að þetta sé verulegur gæðagripur.