Allt er ást
Lesa meira
Allt er ást
Það er ekki mikil rómantík í skáldsögu Svíans Kristians Lundbergs, Allt er ást, þó nóg sé af ástinni, eins og titillinn gefur til kynna. Bókin er þó ástarsaga, en í stað rómantískrar sögufléttu sem gengur út á kynni elskendanna og það hvernig þau ná að lokum saman byggir höfundur upp heim algerra andstæðna, heim eyðileggingar og niðurlægingar sem hann speglar í ástinni sem skyndilega kemur inn í líf hans.