Englar arkarinnar
Lesa meiraTarot spákonan
Lesa meira
Þýddar mangabækur
„Af hverju ertu með svona stór augu amma?“ spyr Rauðhetta litla úlfinn í ævintýrinu og augun eru eitt af því fyrsta sem fólk sem ekki þekkir japönsku myndasöguhefðina, manga, spyr um. Af hverju eru japanskar myndasögupersónur með svona stór augu? Svarið er bæði einfalt og flókið, einfalda svarið er „Bambi“, en myndasöguhöfundurinn sem hafði hvað mest áhrif á mótun hins sérstæða stíls mangans, Osamu Tezuka, var sérstakur Disney-aðdáandi. Tezuka hafði mikinn áhuga á kvikmyndum og því voru það ekki aðeins stóru augun heldur einnig myndmál kvikmynda sem rataði inn í myndasögur hans og með því voru línurnar lagðar fyrir þann teikni- og frásagnarstíl sem einkennir manga í dag.