Æviágrip
Soffía Bjarnadóttir, rithöfundur, ljóð- og leikskáld fædd í Reykjavík 1975. Fyrsta skáldsaga hennar Segulskekkja kom út haustið 2014, fékk nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta og var gefin út í franskri þýðingu hjá Éditions Zulma. Soffía er með MA próf í alm. bókmenntafræði frá HÍ og einnig MA próf í ritlist. Jafnframt hefur hún lagt stund á leikhúsfræði við Kaupmannahafnarháskóla. Ljóð eftir Soffíu hafa verið þýdd á ensku og portúgölsku og birst í tímaritum, m.a. Eufeme, Magazine de Poesia, í Portúgal.
Verðlaun
2016 Viðurkenning fyrir ljóðið „Ég er hér“. Ljóðstafur Jóns úr Vör.
2014 Rauða hrafnsfjöðrin fyrir skáldsöguna Segulskekkja.
2012 Nýræktarstyrkur Miðstöðvar íslenskra bókmennta fyrir skáldsöguna: Segulskekkja.
Tilnefningar
2022 Maístjarnan, ljóðabókaverðlaun: Verði ljós, elskan.
Hunangsveiði
Lesa meiraBeinhvít skurn
Lesa meira