Heimsendir
Lesa meiraÁhrif mín á mannkynssöguna
Lesa meira
Heimsendir
Leifur hét ungur maður, og var Eiríksson. Hann bjó í bakhúsi í Þingholtunum og sýslaði með alþjóðleg verðbréf af takmarkaðri færni. Fjárins hafði Leifur upphaflega aflað með því að skrifa ævisögu vestfirskrar útgerðardrottningar sem seldist vel ein jólin í upphafi 21. aldarinnar. Þegar markaðir tóku dýfu einn daginn þurrkaðist megnið af höfuðstólnum út. Úr því svo var komið ákvað Leifur að rétt væri að sólunda afgangnum með stæl. Halda til Ameríku og lifa þar í vellystingum neyslu og nautna meðan enn væri aur í buddunni.
Áhrif mín á mannkynssöguna
Ég finn mig knúna til að byrja þessa umfjöllun á því að rifja upp dálítið fjaðrafok sem varð í kringum jólabókaflóðið í fyrra, og fór fram á vefritinu Kistan.is, en þar rauk kappsfullur rithöfundur upp til handa og fóta og ávítaði mjög kvenmannsbelg nokkurn, sem hann áleit hafa vegið að sér.