Um bókina
Þetta er bók um mig og þig. Ást okkar. Gleði. Fyndni. Sorg. Skáldskapur sem snertir okkur, kemur okkur við, því það er ekkert í þessari bók sem við höfum ekki reynt á okkur sjálfum. Og sögumaðurinn er einn af okkur; þér, mér og öllum hinum.
Úr Bókinni
Ég átti í ástarsambandi við tuttugu og fjögurra ára konu þegar ég var fimmtán ára. Ég elskaði hana mjög heitt. Mér fannst í fyrstu að þetta samband hefði endað illa. Síðan fannst mér að það hefði endað vel. Því ég fann til léttis þegar því lauk. Jafnvel hamingjukenndar. En hamingjukenndin entist ekki. Tveimur árum síðar var ég enn í sárum. Og þau greru illa. Ég gat ekki losnað við þessa konu úr huga mér. Það var engu líkara en ég væri bundinn henni órjúfanlegum böndum. Ég hugsaði sífellt um hana. Og mig dreymdi hana á næturnar. Ég náði mér ekki á strik. Allra síst í kvennamálum. Ég átti erfitt með að nálgast stúlkur. Og eiginlega meira en það: Ég reyndi það ekki einu sinni. Og eiginlega meira en það: Ég fann til óvilja þegar mér varð hugsað til þess. Ég komst ekki út úr þessu ástandi. Og mér leið sífellt verr. Ég hafði aldrei sagt neinum frá þessu ástarsambandi. Nú fannst mér ég yrði að gera það: Segja allt af létta.
(s. 109-110)