Hlustað
Lesa meira
Hlustað
Nýr höfundur hefur stigið fram í sviðsljósið með sérlega raunsæja og kraftmikla glæpasögu. Því ber að fagna. Jón Óttar Ólafsson er doktor í afbrotafræðum og hefur starfað innan lögreglunnar líkt og söguhetja þessarar fyrstu bókar hans, Hlustað. Báðir hafa einnig starfað í fjárfestingabanka og Jón Óttar hefur starfað hjá Sérstökum saksóknara, en þar hefur söguhetjan, Davíð, hins vegar ekki starfað. Sérstakur og starfsmenn hans koma þó dálítið við sögu í bókinni, en aðallega er þó greint frá störfum lögreglumanna sem rannsaka morðmál.