Týnd
Lesa meira
Týnd
Hún er eftirlýst, en hennar er ekki saknað. Slík eru örlög Sbyllu Forsenström í spennusögu hinnar sænsku Karin Alvtegen, sem fékk Glerlykilinn, Norrænu glæpasagnaverðlaunin, árið 2000, en það var fyrsta árið sem Íslendingar tóku þátt í þessari samkeppni. Týnd var vel að verðlaununum komin, afbragðsgóð spennusaga með sálrænu ívafi, en Alvtegen er mjög gefin fyrir slíkt. Það sem kannski heillar mest er að hér er glæpasöguformúlan tekin skemmtilegum tökum; við hittum hvorki fyrir lögreglumenn né blaðamenn.