Um lífsspeki ABBA og Tolteka (eða líf mitt sem Olof Palme)
Lesa meira
Um lífsspeki ABBA og Tolteka (eða líf mitt sem Olof Palme)
Um lífsspeki ABBA og Tolteka er fyrsta verk höfundarins Adolfs Smára sem er nýlega skriðinn yfir tvítugt. Í fyrstu vakti nafnið Adolf Smári nokkrar grunsemdir í huga mínum því það minnti mig á nafn á sögupersónu í skáldsögu eftir Braga Ólafsson. Langur og dálítið óræður titillinn ýtti enn frekar undir þær grunsemdir og ég hugsaði mér hvort Bragi væri ef til vill farinn að skrifa undir öðru nafni – búinn að skapa sér alter ego svona til að hrista upp í hlutunum. Væntingar eru furðulegt fyrirbæri. Oft getur verið erfitt að hrista þær af sér eftir að lesturinn er hafinn og maður gerir sér grein fyrir að þær fyrirframgefnu hugmyndir, sem maður hafði um verkið, eru tómt bull. Væntingarnar verða einhvern veginn fyrirferðarmeiri þegar um glænýjan höfund er að ræða og þegar maður veit í raun ekkert um söguna sem bíður lestrar. Bragi sat því á öxlinni langt fram eftir lestri Um lífsspeki ABBA og Tolteka – þrátt fyrir að hann kæmi henni alls ekkert við. Og því mun ég ekki ræða hann meir.