Píanóstillirinn
Lesa meira
Píanóstillirinn
Samkvæmt bókarkápu er sagan um píanóstillinn fyrsta skáldsaga ungs bandarísks læknis, Daníels Mason, og sló óvænt í gegn. Það skýrir að nokkru þann byrjendabrag sem er á bókinni, og kannski að einhverju leyti þá fortíðarþrá eftir enskum hefðum undir lok viktoríutímans, sem sagan lýsir. Píanóstillirinn segir frá miðaldra lækni, Edgar Drake, sem fær það óvænta verkefni að fara alla leið til Búrma til að stilla þar falskan franskan flygil, en hann sérhæfir sig einmitt í þessari tilteknu tegund flygla. Ástæðan fyrir því að flygillinn er þangað kominn er sú að herlæknir nokkur, Anthony Carroll, hefur með nokkuð sérstæðum hætti tekist að koma á stöðugu ástandi í hluta Búrma, en hann er mikill áhugamaður um listir og vísindi og krefst þess að fá flygil fluttan alla leið í innstu myrkur landsins.