Saga: A Novel of Medieval Iceland
Lesa meira
Saga: A Novel of Medieval Iceland
Eyrbyggjasaga er helsta heimildin á bakvið sögulega skáldsögu hins kanadíska Jeff Janode, Saga (2005). Saga, líkt og titilinn gefur til kynna, gerist á víkingatímum, tímum fornsagnanna og lýsir valdabaráttu tveggja goða á Snæfellsnesi. Inn í átökin blandast svo daglegt líf almennings. Janoda hefur kynnt sér miðaldir í Norður-Evrópu um árabil og í inngangi kemur fram að hann álítur Íslendingasögur sögulegar heimildir um þennan tíma og því nefni ég Eyrbyggjasögu sem heimild, þó sjálf sé ég fremur skeptísk á að sjá fornsögurnar í þessu ljósi. Ekki ætla ég mér þó að hafna því að sögurnar hafi ákveðið heimildagildi, um hugarheim og hugmyndir, jafnvel siði og daglega háttu, enda álít ég svo að í öllum skáldskap felist fullt eins mikil þekking og í fræðum, en tel þó vafasamt að taka heimildagildi fornsagnanna of bókstaflega eða hátíðlega.