Þungi eyjunnar
Lesa meira
Þungi eyjunnar
„Nóttin er mangó, hún er ananas, hún er jasmína“. Þetta er sá tónn sem við þráum í suðrænum kvæðum, ofgnótt ávaxta og framandi jurta á hlýrri sumarnótt. Við Íslendingar fáum nóg af grámyglu og hörku á okkar hrjóstruga skeri og vonumst því kannski eftir litríkum gróðri, fallegum ströndum og ljúfum sólargeislum þegar við lesum ljóð kúbanskra skálda. En Þungi eyjunnar er ekki skrifuð fyrir aðkomumenn, hún kryfur fallegu hitabeltiseyjuna til mergjar og sýnir að lífið er ekki eintómur dans á rósum á Kúbu. Fallegum sólarströndum og áhyggjulausu lífi er sópað burt og hulunni er svipt af lífinu í paradís. Í meðförum skáldsins verður paradísin einungis merkingarsnauð glansmynd en stormakennd saga eyjunnar kraumar undir.