The Killer’s Guide to Iceland
Lesa meira
The Killer’s Guide to Iceland
Sumum kann að finnast ritari fara nokkuð út fyrir efnið í þessari bókarumfjöllun en komið er inn á ýmislegt sem var efst á baugi síðla í maímánuði. Snertir sumt sjálfsmynd Íslendinga beint og óbeint eins og ofangreind skáldsaga sem átti að vera aðalatriði þessa pistils og er kveikjan að honum. Í 5. tölublaði tímaritsins Grapevine árið 2005 er að finna athyglisverða grein sem nefnist „Art in whose service?“ Höfundur hennar er Haukur Már Helgason. Þar er meðal annars minnst á bíómyndina Gargandi snilld þar sem umfjöllunarefnið er íslensk tónlist. Upp á síðkastið hefur nokkuð af opinberu fé verið sett í íslenskan tónlistariðnað og útkoman sú að sumir íslenskir tónlistarmenn fá séns erlendis. Er það af sem áður var er útlendingar vissu ekki neitt um íslenska tónlist og sýndu henni ekki nokkurn áhuga.