Beint í efni

Sextíu kíló af sólskini

Sextíu kíló af sólskini
Höfundur
Hallgrímur Helgason
Útgefandi
Staður
Ár
2018
Flokkur
Skáldsögur

„Og nú stóð hann hér, Eilífur, einn á breiðri snjóblæjunni, sveittur af angist og hugsaði: Þrjú kíló hveiti fyrir þetta? Þrjú kíló hveiti fyrir bú mitt, konu, börn og kú? Þrjú kíló hveit fyrir allt mitt líf? En þá heyrði hann allt í einu baulað undir fótum sér.“

Drengur sem bjargast fyrir kraftaverk hlýtur að eiga framtíð en það er eins og forlögin geti ekki gert upp við sig hver sú framtíð eigi að vera. Á hann að vera eftirlæti kaupmannsins á Fagureyri, þræll á framandi duggu eða niðursetningur hjá kotungum í Segulfirði?

Í stöðnuðu samfélagi torfaldar eru ekki fleiri möguleikar – en svo kemur síldin! Öreigar landsins sjá peninga í fyrsta sinn og allt breytir um svip.

Sextíu kíló af sólskini fjallar um mikla umbrotatíma í íslenskri sögu; hér segir af því þegar nútíminn sigldi til hafnar á Norðurlandi og Norðmenn námu landið öðru sinni. Saga sem bæði grætir og gleður.

 

Fleira eftir sama höfund

Vom zweifelhaften Vergnügen, tot zu sein

Lesa meira

Konan við 1000°

Lesa meira

Three movies away from New York : Reykjavík, isolated yet international

Lesa meira

Málverk en þó ekki. Viðtal við Gerwald Rockenscaub.

Lesa meira

101 Reykjavik

Lesa meira

Islands forfatter

Lesa meira

101 Reykjavik

Lesa meira

Rokland

Lesa meira

Konan við 1000°

Lesa meira