Edda
Lesa meira
Edda
Viðfangsefni ljóðabókarinnar Eddu er ellin og æskan og þá fyrst og fremst hvernig þessi lífsskeið birtast aðstandendum, þeirra sem staddir eru í miðju lífslínunnar og horfa til beggja átta. Edda er í raun ljóðabálkur þar sem ljóðin mynda eina frásögn, eða frekar mynd af fjölskyldumynstri og tilfinningum þess sem segir frá. Ellin er fyrirferðarmeiri í textanum og æskan birtist frekar sem raunhæf hliðstæða ellinnar. Lífsskeiðin speglast hvort í öðru og sjá má hvernig ljóðmælandinn sem stödd er mitt á milli þeirra ber þau saman í sífellu