Beint í efni

Þinn eigin tölvuleikur

Þinn eigin tölvuleikur
Höfundur
Ævar Þór Benediktsson
Útgefandi
Mál og menning
Staður
Reykjavík
Ár
2019
Flokkur
Barnabækur

um bókina

Þinn eigin tölvuleikur er bók! Bara öðruvísi en aðrar bækur. Hér ert þú söguhetjan og ræður ferðinni. Þú sogast inn í stórhættulegan tölvuleik og til að komast aftur heim þarftu að berjast við uppvakningaher, sleppa frá mannætuplöntum, leysa óleysanlega ráðgátu, temja dreka og vinna landsleik í fótbolta!

úr bókinni

"Áfram Ninja!" veinarðu. "Ég vel þig!" Ninjan hoppar af stað. Hún nær að forðast fyrstu árás köngulóarinnar en þegar skrímslið byrjar að sveifla fætinum sem lítur út eins og stafur með áföstu tyggjói á hún ekki séns. Ninjan festist í jórturleðrinu og þegar skrímslið finnur að hún er alveg föst stígur það harkalega til jarðar.

Ninjan er rekin í gegn.

"Rangt val" bergmálar um allan salinn. Áður en þú veist af opnast loftið fyrir ofan þig og logandi kastalinn hrynur í gegn.

LEIK LOKIÐ.

(s. 272)

-------------------------------

"Hafðu þetta!" orgarðu, grípur um bogann og skýtur þremur örvum leiftursnöggt í áttina að honum. Fáni beygir sig fimlega undan hverri einustu ör og þú horfir á eftir þeim fjúka burt.

"Bless," segir hann og áður en þú veist af hefur drekinn gufað upp.

Þú hrapar til jarðar.

LEIK LOKIÐ.

(s. 273)

-------------------------------

Þú gengur að hátalaranum og bankar í hann.

"Ég tek þig, legg yfir burðarbitann og nota sem brú."

Umsvifalaust fer jörðin að titra.

Eldurinn magnast og hitinn verður nánast óbærilegur.

"Rangt val!" veinar rödd og kastalinn hrynur yfir þig.

LEIK LOKIÐ.

(s. 426)

Fleira eftir sama höfund

Stórhættulega stafrófið

Lesa meira

Þín eigin hrollvekja

Lesa meira

Þitt eigið ævintýri

Lesa meira

Þitt eigið tímaferðalag

Lesa meira

Þín eigin þjóðsaga

Lesa meira

Þín eigin undirdjúp

Lesa meira

Þín eigin goðsaga

Lesa meira

Þín eigin saga: Búkolla

Lesa meira

Þín eigin saga: Knúsípons

Lesa meira