Úr bókinni
Minning
Fyrir framan blokkina varst þú á priki með pakka og ég eitthvað sem rímaði við nafnið mitt. En fyrir aftan vorum við bara tvær og byggðum draumakastala í sandkassanum. Mamma og pabbi voru líka að byggja sinn draumakastala. Þau byggðu á hrauni, ekki á sandi. Seinna fluttum við í kastalann þeirra og í dag eiga þau fullt í fangi með að koma okkur þaðan út.