Beint í efni

Króníka úr Biskupstungum

Króníka úr Biskupstungum
Höfundur
Bjarni Harðarson
Útgefandi
Sæmundur
Staður
Selfoss
Ár
2014
Flokkur
Þjóðlífsþættir

um bókina

Bókin hefur að geyma ættarsögu systkina frá Vatnsleysu í Biskupstungum sem fædd voru á fyrri hluta 19. aldar. Ættarlaukurinn Magnús í Miðhúsum leggst út á borgfirskar heiðar á flótta undan sjálfum sér. Héraðshöfðinginn Halldór ríki á Vatnsleysu hengir sig, sem er þekkt leið æviloka í hans fjölskyldu. Margrét yngri, holgóma systirin sem enginn hugði mikinn frama, verður mektarhúsfreyja á höfuðbólinu Bræðratungu og loks aldargömul kerling sem gamnar sér á nýrri öld við bóklestur. Það gerir líka frændi hennar, Einar húsmaður, sem aldrei vinnur handtak en tínir saman landleigur og rentur af lánum milli þess sem hann ríður út. Einkennilegur sveitamaður, langleitur í síðum frakka. Við sögu koma líka Kristinn tunglfræðingur, Jón eignamaður, jarðlífshúmoristinn Margrét í Hrosshaga og hinn arflausi og drykkfelldi Þórður í Hrauntúni sem deyr eftir að verða innkulsa í Torfastaðakirkju.

Fleira eftir sama höfund

Síðustu dagar Skálholts

Lesa meira

Svo skal dansa: skáldsaga úr veruleikanum

Lesa meira

Sigurðar saga fóts: íslensk riddarasaga

Lesa meira

Mensalder

Lesa meira

Mörður

Lesa meira

Í skugga drottins

Lesa meira

Í Gullhreppum

Lesa meira